Fréttir og tilkynningar
24. nóvember 2009
Til að koma okkur í jólaskap þá ætlum við að föndra saman að vanda í skólanum okkar. Í ár ætlum við að bjóða upp á bæði
jólakortagerð og úrval af trévörum til að mála.
sjálfsögðu eru systkini, afar og ömmur velkomin.
Hvar: Salnum í Selásskóla
Hvenær: Laugardaginn 28. nóvember
Klukkan: 11:00 – 14:00
Kostnaður: Kort: 250 krónur á pakka með 6 kortum í
Kostnaður: Trévörur: 300 - 600 krónur á tréhlut (með málningu)
Hressing: Léttar veitingar í boði foreldrafélagsins
Það sem þarf að taka meðferðis:
Kortagerð: Tréliti, límstifti, glimmer, upphækkunarsvampa og það skraut sem ykkur langar til að nota
Trémálun: Pensla, málningarföt, skreytiefni eins og „snjó“ og málningu ef þið eigið (við verðum með grunnlitina)
Einnig ætlum við að vera með jólamyndir til að lita á A4 blöðum fyrir yngstu börnin, svo snjallt væri að taka vaxliti með fyrir þau.
Vonumst við til að sem flestir láti sjá sig í jólaskapi og föndurstuði...
Elna og Rut




