Árgangur 1996

Prenta

Stóra upplestrarkeppnin
Í morgun var lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í skólanum. Átta nemendur í sjöunda bekk kepptu um réttinn til að lesa fyrir skólans hönd í lokakeppninni sem verður í Árbæjarkirkju fimmtudaginn 19. mars. Nemendurnir lásu texta úr bókinni Nonni eftir Nonna, ljóð eftir Stein Steinarr og að lokum ljóð sem þau völdu sjálf. Á meðan dómnefndin réð ráðum sínum spiluðu nokkrir nemendur fyrir áheyrendur og sungu af stakri snilld. Greinilegt er að það eru margir hæfileikaríkir nemendur á tónlistarsviðinu í sjöunda bekk.

Niðurstaða dómnefndar varð sú að Þórhildur, Sunna og Þór Daníel urðu hlutskörpust og Sigrún Líf var valin varamaður. Hvert þeirra átta hefði sómt sér vel í lokakeppninni enda stóðu þau sig öll með mikilli prýði. Sjá myndir frá keppninni hér.

Prenta

Reykir
Hefð hefur skapast fyrir skólabúðardvöl nemenda elsta bekkjar Selásskóla. Farið er eina viku á ári að Reykjum í Hrútafirði. Vikan 23. – 27. febrúar kom í okkar hlut að þessu sinni og héðan úr skóla hélt kátur hópur nemenda í rútuferð norður yfir Holtavörðuheiði. Ferðin gekk vel þrátt fyrir heilmikla ísingu á þjóðveginum.

Þessa fimm daga sem dvalið var að Reykjum undu nemendur sér við nám og leik í frábærri náttúru og umhverfi Reykjaskóla. Ölduselsskóli var þar einnig með fríðan hóp nemenda. Aðstaða var góð bæði til úti- og inniveru, fjaran, húsakostur og að ekki sé talað um matinn. Allt féll þetta í góðan jarðveg hjá nemendum og eins og sjá má á myndum var hópurinn glaður og ánægður með veru sína þessa daga. Smellið á örina. Undir henni eru myndir.  


Prenta
Helgileikur
Á hverju ári minnumst við fæðingar frelsarans hér í Selásskóla þegar sjöundi bekkur flytur helgileikinn. Þau segja okkur söguna af því þegar Jesúbarnið koma í heiminn, syngja söngva og sálma við kertaljós. Fjölda foreldra mættu til að sjá sýninguna og einnig mátti sjá afa og ömmur. Þetta var hátíðleg stund og nemendurnir okkar stóðu sig með mikilli prýði.

Prenta
Bekkjarskemmtun
Föstudaginn 28. nóvember hittust nemendur og foreldrar í 7. SJÓ í íþróttasal skólans á bekkjarkvöldi. Kepptu foreldrar á móti börnum í brennó og unnu foreldrar samanlagt 3-2 eftir harðvítuga 5 leikja baráttu en til að gæta fullrar sanngirni skal tekið fram að foreldrar nutu mjög liðsinnis tveggja eldri bræðra barna í 7. SJÓ. Óvíst er að úrslitin hefðu annars orðið foreldrum eins hagstæð, þó þeir sýndu þarna og sönnuðu að þeir eru ekki alveg dauðir úr öllum æðum. Það hafði greinilega verið fyrir þessu haft hjá foreldrum ef marka má harðsperrurnar sem fylgdu daginn eftir. Einnig voru spilaðir tveir leikir með blönduðum liðum. Að því loknu gæddu allir sér á snarli og drykkjum. Þetta var hin besta skemmtun og höfðu allir gaman af.

Við vekjum athygli á

Sólskinsvefnum

Sólskinsvefurinn er umhverfis- vefurinn okkar. Á honum má finna ýmsan fróðleik um náttúruvísindi og kennslu þeirra. Til að heimsækja vefinn skaltu smella hér.
Olweusaráætluninni

Selásskóli er Olweusarskóli en í því felst að unnið er er eftir áætlun sem kennd er við Norðmanninn Dan Olweus. Nánari upplýsingar fást hér.
Myndasafninu
Við höfum gaman að því að taka myndir af því sem nemendur okkar eru að fást við í skólanum. Ef þú vilt skoða myndirnar smelltu þá hér.