Árgangur 1997

Prenta

ÚtskriftarrósÚtskrift 2010

Á föstudaginn voru 7. bekkingar kvaddir við athöfn á sal skólans. Nemendur höfðu undirbúið metnaðarfulla dagskrá þar sem þeir fluttu tónlist, dönsuðu, lásu upp ljóð, litu yfir farinn veg og fluttu gjörning um Sigurð Fáfnisbana. Að loknum hefðbundnum útskriftardagskrárliðum, ræðu, afhendingu viðurkenninga og vitnisburðarafhendingu komu nemendur, foreldrar og starfsfólk skólans saman í Miðgarði og snæddu dýrindis kökur í boði foreldra og starfsfólks skólans. Starfsfólk Selásskóla óskar útskriftarhópnum til hamingjum með áfangann og vonar að þeim farnist vel í leik og starfi í framtíðinni. Hér eru myndir frá athöfninni Ör


Prenta
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar
Stóru upplestrarkeppninni lauk á fimmtudaginn í síðustu viku þegar bestu upplesararnir í Ártúnsskóla, Árbæjarskóla, Selásskóla, Norðlingaskóla, Sæmundarskóla og Ingunnarskóla  öttu kappi í Árbæjarkirkju. Eins og alltaf var sérlega ánægjulegt að hlusta á upplesturinn en að endingu varð að skera úr um sigurvegara. Niðurstaðan varð sú að Helga Hlín Stefánsdóttir, Ártúnsskóla varð sigurvegari, Arna María Vignisdóttir, Ártúnsskóla varð í öðru sæti og Berglind Elva Sigvaldadóttir, Selásskóla varð í þriðja sæti. Það lásu tveir fyrir hönd hvers skóla og Júlía Guðbrandsdóttir las einnig fyrir hönd Selásskóla. Myndir frá lokakeppninni eru hér. Lokahátið Stóru upplestrarkeppninnar

Við vekjum athygli á

Sólskinsvefnum

Sólskinsvefurinn er umhverfis- vefurinn okkar. Á honum má finna ýmsan fróðleik um náttúruvísindi og kennslu þeirra. Til að heimsækja vefinn skaltu smella hér.
Olweusaráætluninni

Selásskóli er Olweusarskóli en í því felst að unnið er er eftir áætlun sem kennd er við Norðmanninn Dan Olweus. Nánari upplýsingar fást hér.
Myndasafninu
Við höfum gaman að því að taka myndir af því sem nemendur okkar eru að fást við í skólanum. Ef þú vilt skoða myndirnar smelltu þá hér.