Árgangur 1999
17. mars 2010
Ferð í VíkinaÁ föstudaginn var brugðu nemendur í 5. KÓ sér vestur í bæ til að heimsækja Víkina sem er sjóminjasafn Reykvíkinga. Í safninu er ýmislegt fróðlegt að sjá en í þessari ferð var lögð áhersla á að skoða Varðskipið Óðinn og fræðast um hlutverk þess og sögu. Ferðin var sérlega ánægjuleg og nemendur voru áhugasamir og prúðir. Skólanum svo sannarlega til sóma. Nemendur og kennarar í 5. KÓ þakka kærlega fyrir góðar móttökur. Sjá myndir.






