Árgangur 2001

Prenta

Á siglinguVorið hjá 3. bekk
Þessi síðasta vika í kennslu í þriðja bekk hefur verið ákaflega skemmtileg og viðburðarík.

Lesa meira...

Prenta

Hvað er sólkerfið stórt?
Okkur þykir jörðin vera stór en þegar við skoðum hana í samhengi við sólkerfið okkar þá er hún ósköp lítil. Ef við tækjum nú upp á því að skoða hana í samhengi við vetrarbrautina sem sólkerfið okkar er í væri hún eins og agnarlítið sandkorn á sandströnd. Fjarlægðirnar í geimnum eru svo óskaplega miklar að það er erfitt skilja þær með því að nota venjulega mælikvarða. Það gengur ef til vill betur ef við smækkum sólkerfið og reikistjörnurnar og það var einmitt það sem þriðji bekkur gerði í morgun. Sólin var smækkuð niður í blöðru og jörðin niður í sandkorn. Síðan var farið niður á Rauðavatn og fjarlægðirnar á milli plánetanna stikaðar út á ísnum og rætt um sólkerfið í leiðinni. Aðstoðarskólastjórinn fékk að koma með í ferðina og hann undraðist mjög hvað krakkarnir voru fróðir um sólkerfið. Þannig að ef þið þurfið að vita eitthvað um sólkerfið þá spyrjið bara krakkana í þriðja bekk. Þau eru sérfræðingar í þessu.  Hér eru myndir.

Prenta
Veðurfræðingur í heimsókn
Eitt af útikennsluverkefnum nemenda í 2. bekk í Selásskóla er að læra um veðrið og gera einfaldar veðurmælingar á skólalóð. Í tilefni af því kom Ingibjörg Karlsdóttir móðir Svölu í 2. SJB í heimsókn föstudaginn 12. október sl. og fræddi börnin um veður og veðurmælingar. Við þökkum henni fyrir skemmtilega og upplýsandi fræðslu um mikilvægi þess að gá til veðurs.

Við vekjum athygli á

Sólskinsvefnum

Sólskinsvefurinn er umhverfis- vefurinn okkar. Á honum má finna ýmsan fróðleik um náttúruvísindi og kennslu þeirra. Til að heimsækja vefinn skaltu smella hér.
Olweusaráætluninni

Selásskóli er Olweusarskóli en í því felst að unnið er er eftir áætlun sem kennd er við Norðmanninn Dan Olweus. Nánari upplýsingar fást hér.
Myndasafninu
Við höfum gaman að því að taka myndir af því sem nemendur okkar eru að fást við í skólanum. Ef þú vilt skoða myndirnar smelltu þá hér.