Árgangur 2002
26. mars 2010
ÆvintýraskógurinnÍ morgun sýndu nemendur í öðrum bekk okkur leik- og söngleik um ævintýraskóginn. Söguþráðinn sömdu þau sjálf og sungu lög úr leikritinu um Ronju ræningjadóttur. Sagan þeirra passar vel við heilmikið verkefni sem þau hafa verið að vinna í vetur um tré og skóg. Í stofunni þeirra er til dæmis heill ævintýraskógur sem þau gerðu sjálf og myndirnar í bakgrunninum voru einmitt úr ævintýraskóginum þeirra. Þau voru greinilega búinn að æfa sig mjög vel því sýningin var glæsileg. Allir lásu textann sinn skýrt og fallega og söngurinn þeirra hljómaði hátt og snjallt um salinn. Þau fengu mikið klapp í lokinn og þá tóku þau að sjálfsögðu aukalag. Aukalagið var sjálfur þjóðsöngurinn okkar. Áhorfendur í salnum stóðu upp og tóku undir. Það var svo sannarlega hátíðlegt. Hér er mynband frá sýningunni




