Prenta

Í lögum um grunnskóla er skólum gert að innleiða sjálfsmat. Markmið þess er að auðvelda starfsfólki að vinna að markmiðum skólans, greina sterkar og veikar hliðar í skólastarfinu og að meta hvort markmiðunum hafi verið náð. Skólum er í sjálfsvald sett hvernig þeir standa að sjálfsmati sínu en menntamálaráðuneytið gerir úttekt á sjálfsmatsaðferðum skóla á fimm ára fresti.

Skólaárið 2006 - 2007 var gerð úttekt á sjálfmatsaðferðum Selásskóla. Niðurstaða þess var á þá leið að skólinn uppfylli ákvæði grunnskólalaga að hluta. Í framhaldi af því var ákveðið að gera gangskör í sjálfsmatsaðferðum skólans og beita aðferðum stefnumiðaðs árangursmats við sjálfsmatið. Í því felst meðal annars að skólinn setur sér mælanleg markmið og kannar reglulega hvernig gengur að ná markmiðunum.

Í sjálfsmatsskýrslu skólans er lýsing á markmiðum skólans, niðurstöður árangursmatsins og tillögur um úrbætur á þeim þáttum þar sem markmiðum er ekki náð. Þegar þetta er ritað er sjálfsmatsskýrsla í vinnslu. Þegar hún er tilbúin má nálgast hana í pdf útgáfu með því að smella á krækjuna hér til vinstri.

Við vekjum athygli á

Sólskinsvefnum

Sólskinsvefurinn er umhverfis- vefurinn okkar. Á honum má finna ýmsan fróðleik um náttúruvísindi og kennslu þeirra. Til að heimsækja vefinn skaltu smella hér.
Olweusaráætluninni

Selásskóli er Olweusarskóli en í því felst að unnið er er eftir áætlun sem kennd er við Norðmanninn Dan Olweus. Nánari upplýsingar fást hér.
Myndasafninu
Við höfum gaman að því að taka myndir af því sem nemendur okkar eru að fást við í skólanum. Ef þú vilt skoða myndirnar smelltu þá hér.