21. október 2008
Sérkennslustefna Selásskóla er í anda stefnumörkunar Menntasviðs Reykjavíkur. Markmiðið er að sinna öllum nemendum svo sem kostur er og nemendur fái kennslu við sitt hæfi. Í kennslunni er leitast við að styrkja hvern einstakling, bæta líðan nemenda og byggja námið á styrkleikum nemanda.
Til að vinna að settu marki er lögð áhersla á sveigjanlega kennsluhætti til að mæta þörfum nemenda. Að hluta til koma kennarar inn í árganga þannig að svigrúm gefst til að minnka hópa og mæta þeim eftir getu og þörfum einstaklinga. Þeim nemendum sem eiga við námserfiðleika að stríða er boðið upp á aðstoð; ýmist tímabundna í formi námskeiða eða utan bekkjar til lengri eða skemmri tíma. Í slíkum tilfellum eru foreldrar alltaf hafðir með í ráðum og stefnt að mikilli samvinnu við þá.
Varðandi nemendur með hegðunar- og atferlisvanda verður lögð áhersla á að greina vandann og veita bæði kennurum og foreldrum stuðning í kjölfarið. Lögð verður áhersla á að styðja kennara til sjálfshjálpar varðandi nemendur sem sýna frávik í hegðun.




