21. október 2008
Undir raunvísindi flokkast stærðfræði, náttúrufræði sem skiptist í eðlisvísindi (eðlis- og efnafræði), jarðvísindi og lífvísindi.
Stærðfræðin er ásamt móðurmálinu kjarnagrein í íslenskum grunnskólum. Með nýju námsefni í stærðfræði hafa áherslur í stærðfræðinni breyst. Meiri áhersla er lögð á skilning, rökhugsun og að finna leiðir til lausna ásamt leikni í meðferð talna. Núna er verið að skrifa heildstæða námskrá í stærðfræði fyrir Selásskóla og verður hún birt hér þegar hún er tilbúin.
Náttúrufræði er sú grein sem Selásskóli hefur markað sér sérstöðu í. Það er að segja þeim þáttum hennar sem snúa að umhverfismennt og útikennslu. Þessi áhersla birtist meðal annars í þátttöku skólans í verkefni Landverndar ,,Skóli á grænni grein" en Selásskóli hefur flaggað Grænfánanum frá árinu 2003. Núna er verið að skrifa heildstæða námskrá í náttúrufræðum sem verður birt hér þegar hún er tilbúin.




