Prenta

Vefur í viðgerðVefur Selásskóla

Það fer væntanlega ekki fram hjá glöggum gestum vefsins okkar að hann tekur miklum breytingum þessa dagana. Við erum við að nýta okkur það tóm sem gefst yfir sumarmánuðina þegar notkunin á vefnum er í lágmarki til að föndra dálítið við hann. Það verður víst ekki hjá því komist að vefurinn verði dálítið ruglingslegur á meðan þessu vefföndri stendur og biðjumst við velvirðingar á því.

 

Gefum okkur að þegar verki er lokið þá séum við með betra verkfæri í höndunum til að miðla upplýsingum um skólann og starfið sem fer fram í honum. Allar ábendingar eru vel þegnar.

 

Hlutverk vefsins

Vefnum er ætlað að miðla upplýsingum um skólann og skólastarfið og einnig segja frá því sem er að gerast í skólanum hverju sinni. Það er von okkar að hann reynist gagnlegur þeim sem skólastarfið snertir, nemendum, foreldrum og kennurum og auðvitað öllum þeim sem hafa áhuga á starfinu sem fer fram í skólanum.

Uppbygging vefsins

Vefnum er skipt upp í fimm hluta fyrir utan það efni sem fer á forsíðuna.

Um skólann

Almennar upplýsingar um skólann og starfsmenn. Þar er einnig að finna efni sem skólanum er skylt að gefa út samkvæmt grunnskólalögum ásamt efni sem Menntasvið Reykjavíkur óskar eftir að skólinn gefi út. Hér má meðal annars finna almennan hluta skólanámskrárinnar, sjálfsmatsskýrslu, umbótaáætlanir og ýmsar viðbragðsáætlanir.

Nám og kennsla

Efni sem tengist kjarnanum í starsemi skólans. Hér eru námsáætlanir faga birtar og einnig upplýsingar um hvernig stuðningi er háttað.

Nemendur

Frásagnir af starfinu í árgöngum, myndasöfn, krækjur o.fl.

Foreldrar

Upplýsingar fyrir foreldra. Hér má finna upplýsingar um foreldrafélagið, foreldraráð og einnig ýmis eyðublöð.

Starfsfólk

Efni fyrir starfsfólk og kennara skólans. Þessi hluti vefsins er læstur.

 

Við vekjum athygli á

Sólskinsvefnum

Sólskinsvefurinn er umhverfis- vefurinn okkar. Á honum má finna ýmsan fróðleik um náttúruvísindi og kennslu þeirra. Til að heimsækja vefinn skaltu smella hér.
Olweusaráætluninni

Selásskóli er Olweusarskóli en í því felst að unnið er er eftir áætlun sem kennd er við Norðmanninn Dan Olweus. Nánari upplýsingar fást hér.
Myndasafninu
Við höfum gaman að því að taka myndir af því sem nemendur okkar eru að fást við í skólanum. Ef þú vilt skoða myndirnar smelltu þá hér.