Prenta

 Vorið hjá 3. bekk.

VorferðÁ mánu- og miðvikudeginum lögðum við áherslu á að klára verkefni í skólanum. Þriðjudagurinn var helgaður fjallahringnum okkar. Við gengum að skilti austan við Þverás. Á því er myndir og nöfn á öllum þeim fjöllum og fellum sem sjást frá Selás. Síðan gengum við í hádegismóa og litum til Úlfarsfells og sáum Snæfellsjökul í mistrinu. Fimmtudagurinn var helgaður kartöflurækt. Við settum niður útsæðið okkar sem var orðið ansi vel spírað. Vonandi fá kartöflurnar næga sól og vætu í sumar svo börnin í fjórða bekk fái góða uppskeru.

Í dag föstudag fórum við svo í Vinalundinn okkar sem er í Rauðavatnsskógi. Reyndar fengum við vægt áfall í fyrstu þar sem umgengni þar var mjög slæm. Einhverjir höfðu verið með bókabrennu í eldstæðinu okkar og hestamenn höfðu áð með hestana sína við kennslupúltið svo við þurftum að passa okkur á að stíga ekki í hestatað. En nemendur og kennarar í þriðja bekk áttu enn einn frábæran morgun. Börnin léku sér í köðlunum o.fl. og svo eldbökuðum við sykurpúða. Að lokum fórum við heim í skóla og börnin tóku námsbækur vetrarins með sér heim.

Við vekjum athygli á

Sólskinsvefnum

Sólskinsvefurinn er umhverfis- vefurinn okkar. Á honum má finna ýmsan fróðleik um náttúruvísindi og kennslu þeirra. Til að heimsækja vefinn skaltu smella hér.
Olweusaráætluninni

Selásskóli er Olweusarskóli en í því felst að unnið er er eftir áætlun sem kennd er við Norðmanninn Dan Olweus. Nánari upplýsingar fást hér.
Myndasafninu
Við höfum gaman að því að taka myndir af því sem nemendur okkar eru að fást við í skólanum. Ef þú vilt skoða myndirnar smelltu þá hér.