05. maí 2010

Misjafnar aðstæður barna
Enn þann dag í dag njóta milljónir barna um allan heim ekki réttinda vegna fátæktar sem okkur hér á Íslandi þykja sjálfsögð.
Til dæmis má nefna rétt sem okkur í skólanum er hugleikinn eðli málsins samkvæmt. Það er rétturinn til að læra og lesa og njóta menntunar. Á miðvikudaginn í næstu viku, þann 12. maí, ætlar Selásskóli að reyna að leggja sitt að mörkum til að jafna aðstæður barna með því að taka þátt í verkefni á vegum Unicef á Íslandi sem kallast Unicef - hreyfingin. Þann dag munu nemendur, kennarar og starfsfólk storma fylktu liði út í grenndarskóg Selásskóla við Rauðavatn og leysa ýmsar þrautir sem fólk í nánasta umhverfi nemendanna hefur heitið á gengi þeirra í. Hér má nálgast nánari upplýsingar um verkefnið og áheitin. 
Dagana áður munu kennarar skólans fræða nemendur um misjafnar aðstæður barna og gildi samhjálpar.




