12. mars 2010
Skákmeistari Selásskóla
Á miðvikudaginn var skákmeistari Selásskóla krýndur í fyrsta sinn.
Þátttaka í mótinu var sérlega góð en það mættu um það bil fimmtíu nemendur úr öðrum til sjöunda bekk á mótið. Alexander Elvar Friðriksson nemandi í fimmta bekk var krýndur skákmeistari Selásskóla en hann vann allar skákirnar sínar. Í öðru sæti varð Axel Bergsson nemandi í öðrum bekk og í þriðja sæti varð Edda Kristín Óttarsdóttir nemandi í sjötta bekk. Við óskum þeim til hamingju með árangurinn.
Til að ná árangri í skák þarf að æfa sig og stundum nenna pabbi eða mamma ekki að tefla. Ef ykkur langar að tefla og enginn á heimilinu hefur tíma til að tefla við ykkur þá getið þið smellt á grænu örina, skrifað nafnið ykkar og fundið taflfélaga. Það eru síðan myndir frá mótinu undir appelsínugulu örinni.





