12. ágúst 2008
Í samræmi við lög um grunnskóla starfar skólaráð við Selásskóla. Það er samráðsvettvangur skólastjóra Selásskóla og skólasamfélagsins um skólahaldið. og tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráðið er skipað níu einstaklingum sem sitja í því í tvö ár í senn, tveimur fulltrúum kennara ásamt einum fulltrúa annars starfsfólks, tveimur fulltrúum nemenda og tveimur fulltrúum foreldra, auk skólastjóra sem stýrir starfi skólaráðsins. Skólaráð velur að auki einn fulltrúa grenndarsamfélags til að sitja í ráðinu eða viðbótarfulltrúa úr hópi foreldra. Auk þess skal skólastjóri boða til sameiginlegs fundar skólaráðs og stjórnar nemendafélags að lágmarki einu sinni á ári.
Helstu verkefni skólaráðsins eru að fjalla um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð fær til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda.
Í skólaráði 2008 - 2009 sitja :
| Örn Halldórsson | Skólastjóri |
| Þórey Þorkelsdóttir | Fulltrúi kennara |
| Elísabet Hildiþórsdóttir | Fulltrúi kennara |
| Inga Sigurrós Guðnadóttir | Fulltrúi starfsmanna |
| Björn Áki Jósteinsson | Fulltrúi nemenda |
| Anna Mae Cathcart-Jones | Fulltrúi nemenda |
| Elín Arna Gunnarsdóttir | Fulltrúi foreldra |
| Jón Árnason | Fulltrúi foreldra |
| Rut Gunnarsdóttir | Fulltrúi foreldra |




