03. febrúar 2010
Hugsaðu áður en þú sendir
Á hverjum vetri heyrum við sem störfum í skólanum af miður skemmtilegum málum sem tengjast tölvu- og netnotkun nemenda okkar.
Það sem börnin eru að gera í netheimum er foreldrum gjarnan dulið og þess vegna er mjög mikilvægt að foreldrar séu meðvitaðir um þær hættur sem leynast þar. Við viljum vekja athygli á alþjóðlega netöryggisdeginum sem verður þriðjudaginn 9. febrúar. Í tengslum við daginn verður ráðstefnan Hugsaðu áður en þú sendir haldin í aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð en henni má fylgjast með í beinni útsendingu á netinu. Sjá nánar hér 




