Selásskóli

Grunnskóli, 1.-7. bekkur

Selásbraut 109
110 Reykjavík

""

Skóladagatal

Í skóladagatali Selásskóla eru skipulagsdagar skráðir ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir nemendur, foreldra og forráðamenn.

Hvað er í matinn?

Flestir grunnskólanemendur eru í mataráskrift. Skólamatur kostar það sama í öllum skólum. Ekki þarf að greiða mataráskrift fyrir fleiri en tvö börn frá sama heimili. Hér getur þú fylgst með því hvað er á boðstólnum í mötuneyti Selásskóla.

Um Selásskóla

Skólastarf í Selásskóla hófst haustið 1986. Skólinn er jaðarskóli efst í Árbænum. Börnin eru í Selásskóla til 12 ára aldurs (1.-7. bekkur) en þá fara þau í Árbæjarskóla sem er safnskóli hverfisins. Skólinn hefur nýtt sér nálægð við helstu náttúruperlur borgarinnar með því að tengja hana við sem flestar námsgreinar.

Einkunnarorð skólans eru Látum þúsund blóm blómstra og gildin eru Virðing – gleði og vinátta. Þetta leiðarljós endurspegla áherslu í skólastarfinu.

Frístundaheimilið Víðisel er fyrir börn í 1.-4. bekk í Selásskóla og félagsmiðstöðin Tían býður upp á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir börn og unglinga.

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Selásskóla er: Þóra Ársælsdóttir

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​
 

Er barnið þitt að byrja í grunnskóla?

Á þessari síðu færðu gagnlegar upplýsingar um skólabyrjun. Eins og til dæmis hvað börnin þurfa að taka með sér í skólann og hvort börnin fái mat á skólatíma.

Stjórnendateymi Selásskóla

Skólastarfsemi

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Selásskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira. 

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Foreldrafélag  er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar.

Foreldrafélag Selásskóla

Foreldrafélag er formlegur samstarfsvettvangur forsjáraðila þar sem þeim gefst kostur á að ræða skólagöngu barna og hvaðeina sem snertir uppeldi og menntun. Félagið hefur unnið að ýmsum verkefnum með skólanum m.a. útihátíðum og skólaslitum.

Skólahverfi Selásskóla

Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun. Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Selásskóla.